Trjáklippingar, vorhreinsanir og pantanir fyrir sumarið 2024

gardarbest@gardarbest.is


Garðar best er alhliða garðyrkjufyrirtæki sem starfar árið um kring og sinnir margskonar verkefnum, stórum sem smáum.  Við vinnum fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki og sveitarfélög.

Garðsláttur, trjáklippingar, trjáfellingar, beðavinna, rennuhreinsanir, lóðahreinsanir, þöku- lagnir, hálkuvarnir, gróðursetningar, mold og sandur í beð / sandkassa er meðal þess sem við sérhæfum okkur í og er þá fátt eitt talið.  Fá verk er okkur ofviða.  Ef þú finnur ekki það sem þig vantar í þjónustuflokkunum hér vinstra megin á síðunni („Þjónusta okkar“) er um að gera hafa samband.  Einfaldast er að senda okkur tölvupóst á netfangið gardarbest@gardarbest.is eða að hringja í okkur í síma 565 1400.  Það má líka fara inn á facebook því þar er Garðar best ehf. með síðu þar sem hægt er að senda okkur skilaboð og skoða myndir af ýmsum verkum okkar.

Garðar best ehf. byggir á traustum grunni og hefur alla tíð lagt áherslu á vönduð vinnubrögð og góða þjónustu.  Starfsfólk okkar er röskt og reynslumikið og nálgast öll verk með bros á vör.  Við bjóðum áreiðanleika og gott viðmót og varla lýgur slagorðið okkar „Garðar gerir það best!“...