Forsíða

Þarf að gera eitthvað í garðinum?  Öll garðvinna árið um kring!  gardarbest@gardarbest.is

4. febrúar 2013:  Trjáklippingar og grisjun gróðurs.

Nú getið þið farið að huga að trjáklippingum og grisjun gróðurs svo að garðurinn verði klár þegar vorið kemur og vöxtur hefst.  Tíminn fram á vor er kjörinn til þessara verka en það hefur löngum loðað við garðeigendur að huga ekki að sér fyrr en í maí þegar allt er farið af stað og sumar tegundir þá orðið of seint að klippa.  Sem fyrr bjóðum við upp á góða þjónustu, gott viðmót og vönduð vinnubrögð og minnum á máltækið góða að "Garðar gerir það best!".  :)  Netfangið okkar er gardarbest@gardarbest.is og símanúmerið er 698-9334.

Við búum að mikilli reynslu sem  okkur hefur áskotnast síðustu 25 árin.  Okkur hefur haldist vel á viðskiptavinum okkar á milli ára gegnum árin og viljum bjóða nýja viðskiptavini velkomna.  Við bjóðum gott viðmót, góða þjónustu og áreiðanleika.  Við látum það eiga sig að birta um okkur sjálfshól í formi ummæla viðskiptavina á síðunni en lofum því að hjá okkur er vandað til verka.  Það kostar ekkert að fá okkur í heimsókn og gera tilboð í verk og einfaldast er að hafa samband með því að senda okkur tölvupóst eða hringja.

Netfangið okkar er gardarbest@gardarbest.is og símanúmerið 698-9334.  Svo erum við líka á facebook og með því að smella á hlekkinn hér til hægri kemstu þangað í einum grænum þar sem má meðal annars finna margar skemmtilegar fyrir og eftir myndir frá fyrri verkum okkar....

Hér á forsíðunni, ofarlega til vinstri, má svo finna myndir af verkum okkar undir flipanum "Þjónusta okkar".  Það má svo sjá með nokkuð skýrum hætti á myndinni hér fyrir ofan hvert símanúmer okkar er og tölvupóst með fyrirspurn eða pöntun á þjónustu okkar getið þið sent til okkar á netfangið  gardarbest@gardarbest.is